Steinar J. Lúðvíksson látinn

Steinar J. Lúðvíksson fyrrverandi formaður Samtaka íþróttafréttamanna er látinn, 84 ára að aldri. Greint er frá andláti hans á vef mbl. Steinar var formaður SÍ 1977-1978 og starfaði sem blaðamaður í áraraðir. Hann var mikill íþróttaáhugamaður og eftir hann liggur fjöldi bóka um íþróttasögu. Er hann einn afkastamesti rithöfundur Íslands í íþróttabókaútgáfu. Steinar var sæmdur silfurmerki Samtaka íþróttafréttamanna í 50 ára afmælishófi SÍ árið 2006.

Samtök íþróttafréttamanna minnast framlags Steinars til samtakanna og til íslenskra íþrótta með hlýhug og þakklæti.