Knattspyrnukonan Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði Þýskalandsmeistara Bayern München og íslenska landsliðsins var í gærkvöld útnefnd Íþróttamaður ársins 2024. Þetta var í níunda sinn sem kona hlýtur nafnbótina og hún er áttunda konan til að fá sæmdarheitið, þar af sú þriðja úr knattspyrnu á eftir Margréti Láru Viðarsdóttur og Söru Björk Gunnarsdóttur.
Glódís Perla fékk fullt hús stiga í kjörinu eða 480 stig af jafn mörgum mögulegum. Í fyrsta sinn röðuðu konur sér í þrjú efstu sæti kjörsins. Kraftlyftingakonan Sóley Margrét Jónsdóttir hafnaði í öðru sæti og Eygló Fanndal Sturludóttir úr ólympískum lyftingum í 3. sæti.
Þórir Hergeirsson þjálfari kvennalandsliðs Noregs í handbolta var útnefndur þjálfari ársins og er það í þriðja sinn sem hann hlýtur þá viðurkenningu á Íslandi. Karlalið Vals í handbolta var svo valið lið ársins. Sjá má hér fyrir neðan hverjir fengu stig í kjörinu. Samtök íþróttafréttamanna hafa staðið fyrir vali á íþróttamanni ársins frá árinu 1956 og á þjálfara ársins og liði ársins frá árinu 2012.
Íþróttamaður ársins 2024
1. Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna 480
2. Sóley Margrét Jónsdóttir, kraftlyftingar 217
3. Eygló Fanndal Sturludóttir, ólympískar lyftingar 159
4. Albert Guðmundsson, knattspyrna 156
5. Anton Sveinn McKee, sund 131
6. Ómar Ingi Magnússon, handknattleikur 94
7. Snæfríður Sól Jórunnardóttir, sund 69
8. Orri Steinn Óskarsson, knattspyrna 67
9. Sveindís Jane Jónsdóttir, knattspyrna 57
10. Ásta Kristinsdóttir, fimleikar 53
11. Thelma Aðalsteinsdóttir, fimleikar 48
12. Gísli Þorgeir Kristjánsson, handknattleikur 42
13. Elvar Már Friðriksson, körfuknattleikur 37
14. Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleikur 36
15. Erna Sóley Gunnarsdóttir, frjálsíþróttir 30
16. Daníel Ingi Egilsson, frjálsíþróttir 29
17. Benedikt Gunnar Óskarsson, handknattleikur 16
18. Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, knattspyrna 9
19.-20. Aron Pálmarsson, handknattleikur 7
Elín Klara Þorkelsdóttir, handknattleikur 7
21. Jóhann Berg Guðmundsson, knattspyrna 4
22. Sara Rún Hinriksdóttir, körfuknattleikur 2
23.-24. Elín Jóna Þorsteinsdóttir, handknattleikur 1
Kristinn Pálsson, körfuknattleikur 1
Lið ársins
1. Valur handbolti karla 67
2. Ísland hópfimleikar kvenna 53
3. Ísland fótbolti kvenna 41
4. Valur handbolti kvenna 30
5. Víkingur fótbolti karla 14
6. Ísland körfubolti karla 6
7. FH handbolti karla 3
8.-9. Breiðablik fótbolti karla 1
Ísland handbolti kvenna 1
Þjálfari ársins
1. Þórir Hergeirsson, þjálfari kvennaliðs Noregs í handbolta 116
2. Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta 48
3. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings í fótbolta 17
4. Alfreð Gíslason, þjálfari karlaliðs Þýskalands í handbolta 15
5. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Vals í handbolta 9
6. Halldór Árnason, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta 6
7. Freyr Alexandersson, þjálfari karlaliðs Kortrijk í fótbolta 5