Ómar Ingi Magnússon er íþróttamaður ársins 2021

Úrslitin í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins 2021 eru ljós. Handboltamaðurinn Ómar Ingi Magnússon handboltamaður hjá Magdeburg í Þýskalandi hlaut titilinn í ár. Hann er tíundi handboltamaðurinn frá upphafi kjörsins 1956 sem hlýtur nafnbótina. Áður höfðu Sigríður Sigurðardóttir (1964), Geir Hallsteinsson (1968), Hjalti Einarsson (1971), Alfreð Gíslason (1989), Geir Sveinsson (1997), Ólafur Stefánsson (2002, 2003, 2008 og 2009), Guðjón Valur Sigurðsson (2006), Alexander Petersson (2010) og Aron Pálmarsson (2012) hlotið titilinn. Níu ár eru síðan handboltamaður varð hlutskarpastur síðast í kjörinu. Þetta er í þrettánda sinn sem handboltamaður vinnur.…

Lesa meira