Gísli Þorgeir Íþróttamaður ársins 2023
Kjöri íþróttamanns ársins 2023 var lýst á Hilton hótel í Reykavík í kvöld. Gísli Þorgeir Kristjánsson handboltamaður hjá Magdeburg í Þýskalandi hlaut sæmdarheitið að þessu sinni. Gísli vann á árinu Meistaradeild Evrópu í handbolta og var valinn verðmætasti leikmaður úrslitahelgarinnar. Gísli fór úr axlarlið degi fyrir úrslitaleikinn, en náði engu að síður að spila úrslitaleikinn með frábærum árangri. Þá var Gísli einnig valinn besti leikmaður þýsku deildarinnar í vor, auk þess að spila stórt hlutverk með íslenska landsliðinu á árinu. Arnar Bergmann Gunnlaugsson þjálfari karlaliðs Víkings í fótbolta var útnefndur…
Lesa meira