Íþróttamaður ársins 

Efstu í kjöri Íþróttamanns ársins 2025

Samtök íþróttafréttamanna opinberuðu í dag hverjir urðu í efstu tíu sætum kjörsins á Íþróttamanni ársins 2025. Einnig er orðið ljóst hverjir eru þrír efstu í kjörinu á þjálfara ársins og á liði ársins. Úrslitin verða kunngjörð í Hörpu laugardaginn 3. janúar 2026 klukkan 19:40 í beinni útsendingu á RÚV. Eftirfarandi texti birtist á vef Vísis í dag og er skrifaður af Óskari Ófeigi Jónssyni félaga í SÍ. Við tökum okkur það leyfi að endurbirta texta Óskars Ófeigs hér: Íþróttafólkið sem endaði í tíu efstu sætunum í ár kemur frá sjö…

Lesa meira

Fimm nýir félagar

Á árlegum desemberfundi Samtaka íþróttafréttamanna í dag þar sem farið var yfir árið og nýjustu mál voru einnig fimm nýir félagar teknir inn í SÍ. Það eru Anna Sigrún Davíðsdóttir á RÚV, Ágúst Orri Arnarson hjá Sýn, Bjarni Helgason á Morgunblaðinu og mbl.is, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson hjá Fótbolta.net og Sæbjörn Steinke hjá Fótbolta.net. Félagsmenn eru nú 30 talsins í það minnsta fram að næsta aðalfundi. Gunnar Egill Daníelsson hætti störfum hjá Morgunblaðinu og mbl.is í nóvember en heldur aðild sinni í SÍ fram að næsta aðalfundi. Fram undan er árlegt…

Lesa meira