Atli Steinarsson látinn

Atli Steinarsson, einn stofnenda Samtaka íþróttafréttamanna og fyrsti formaður félagsins, lést 8. nóvember 2017. Atli skipaði stóran sess í sögu okkar samtaka og í hugum félagsmanna, núverandi og fyrrverandi. Atli, sem var 88 ára, var tíður gestur á hófi Íþróttamanns ársins undanfarin ár og áratugi og hélt því góðum tengslum við samtökin. Hans var minnst með eftirfarandi orðum í Morgunblaðinu þann 17. nóvember 2017. Kveðja frá Samtökum íþróttafréttamanna Atli Steinarsson var brautryðjandi í stétt íþróttafréttamanna á Íslandi. Hann var einn af fjórum stofnendum Samtaka íþróttafréttamanna, sem stofnuð voru þann 14.…

Lesa meira