Samstarf við KSÍ og Blindrafélagið

Samtök íþróttafréttamanna hafa hafið samstarf við KSÍ og Blindrafélagið um sjónlýsingar á landsleikjum í fótbolta á Laugardalsvelli. KSÍ býður blindum og sjónskertum sem sækja landsleiki á Laugardalsvelli upp á ítarlegar lýsingar, ekki ósvipað og þekkist í útvarpslýsingum. Samtök íþróttafréttamanna sjá um að skaffa reynda lýsendur á leikina. Landsleikur Íslands og Slóvakíu í kvöld var fyrsti leikurinn í þessu samstarfi og sá Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson um sjónlýsinguna. Gunnar Birgisson lýsir svo Ísland-Portúgal á þriðjudagskvöld. Lýsingarnar eru í lokuðu umhverfi, aðeins ætlaðar blindum og sjónskertum á vellinum. Þessir fyrstu tveir leikir eru…

Lesa meira

Gaupi kveður

Guðjón Guðmundsson sagði íþróttafréttir á Stöð 2 í síðasta 31. maí og lét þar með af störfum. Guðjón starfaði sem íþróttafréttamaður hjá Stöð 2 og Bylgjunni í 32 ár. Samtök íþróttafréttamanna þakka Guðjóni kærlega fyrir hans framlag til íþróttafréttamennsku undanfarna þrjá áratugi.

Lesa meira