Norðurlandafundur í Danmörku

Samtök íþróttafréttamanna í Danmörku buðu samtökum annarra norðurlanda auk Eistlands til norræns fundar í Kaupmannahöfn í vikunni. Þar báru fulltrúar stjórna samtakanna í viðkomandi löndum saman bækur sínar og fóru yfir helstu áskoranir í hverju landi fyrir sig um þessar mundir auk þess að ræða starf Alþjóða samtaka íþróttafréttamanna (AIPS). Norðurlöndin eru mis virk innan AIPS og Ísland hefur lítið tekið þátt í starfinu þar undanfarin ár. Þá kom Hans Natorp forseti dönsku ólympíunefndarinnar einnig sem gestur fyrri daginn og hafði framsögu um íþróttir og stjórnmál og svaraði spurningum þar…

Lesa meira