Norðurlandaþing 

Norðurlandafundur í Danmörku

Samtök íþróttafréttamanna í Danmörku buðu samtökum annarra norðurlanda auk Eistlands til norræns fundar í Kaupmannahöfn í vikunni. Þar báru fulltrúar stjórna samtakanna í viðkomandi löndum saman bækur sínar og fóru yfir helstu áskoranir í hverju landi fyrir sig um þessar mundir auk þess að ræða starf Alþjóða samtaka íþróttafréttamanna (AIPS). Norðurlöndin eru mis virk innan AIPS og Ísland hefur lítið tekið þátt í starfinu þar undanfarin ár. Þá kom Hans Natorp forseti dönsku ólympíunefndarinnar einnig sem gestur fyrri daginn og hafði framsögu um íþróttir og stjórnmál og svaraði spurningum þar…

Lesa meira
Norðurlandaþing 

Norðurlandaþing í Osló og 100 ára afmæli

Stjórn Samtaka íþróttafréttamanna, Tómas Þór Þórðarson, Edda Sif Pálsdóttir og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson sóttu Norðurlandaþing íþróttafréttamanna í Osló, Noregi 9. – 11. maí. Á þinginu hélt Anders K. Christiansen rannsóknarblaðamaður á sviði íþrótta hjá VG meðal annars erindi um störf sín. Halvor Ekeland íþróttafréttamaður NRK sem handtekinn var í Doha í Katar í lok nóvember fyrir fréttaflutning af aðbúnað verkafólks sem vinnur við að reisa leikvanga fyrir HM í fótbolta fór yfir þá reynslu sína auk þess sem Hanne Marie Brevik fréttastjóri íþrótta á NRK fór yfir málið allt saman…

Lesa meira