Ómar Ingi Magnússon er íþróttamaður ársins 2022

Íþróttamaður ársins 2022 er handboltamaðurinn Ómar Ingi Magnússon hjá Magdeburg. Hann varð efstur á 30 atkvæðaseðlum af 31 í ár. Hann var settur í 2. sæti á seðlinum þar sem hann var ekki efstur. Það munaði því aðeins fimm stigum að Ómar ynni með fullu húsi stiga í ár. Ómar er aðeins annar handboltamaðurinn til að hreppa titilinn íþróttamaður ársins oftar en einu sinni. Ólafur Stefánsson hlaut heiðurinn fjórum sinnum. Þetta er nú í fjórtánda sinn sem handboltamaður er íþróttamaður ársins. Sigríður Sigurðardóttir vann fyrst (1964) svo hafa það verið…

Lesa meira

Ellefu sem koma til greina sem íþróttamaður ársins 2022

Samtök íþróttafréttamanna opinberuðu í dag hvaða íþróttamenn enduðu í efstu tíu sætunum í kjöri samtakana á íþróttamanni ársins 2022. Listi þeirra efstu er birtur í stafrófsröð í dag, Þorláksmessu eins og venja er. Einnig þrír efstu í kjörinu á liði ársins og þjálfara ársins. Úrslitin verða kunngjörð 29. desember. Í ár gerðist það að tveir íþróttamenn urðu jafnir að stigum í 10. – 11. sæti. Reglur kjörsins segja aðeins til um hvað gera eigi séu tveir jafnir í 1. sæti. Reglurnar ná ekki yfir sætin fyrir neðan. Það eru því…

Lesa meira

Tveir nýir félagar

Á félagsfundi Samtaka íþróttafréttamanna í dag voru tveir nýir félagar teknir inn í samtökin. Valur Páll Eiríksson hjá Sýn, sem hefur áður verið félagi í samtökunum þegar hann vann á RÚV er kominn inn í þau á ný. Helgi Fannar Sigurðsson á íþróttafréttadeild Torgs var svo sömuleiðis tekinn inn sem meðlimur samtakana í dag. Báðir hafa þeir því atkvæðarétt í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2022, en félagar greiða atkvæði í kjörinu um helgina. Listi yfir það íþróttafólk sem endar í tíu efstu sætum kjörsins, ásamt efstu þremur þjálfurum og efstu…

Lesa meira