Aðalfundir 

Edda Sif nýr formaður

Ný stjórn Samtaka íþróttafréttamanna. Frá vinstri: Valur Páll Eiríksson ritari, Edda Sif Pálsdóttir formaður og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson gjaldkeri. Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna var haldinn í dag í sal Blaðamannafélags Íslands. Tómas Þór Þórðarson sem hefur verið formaður SÍ undanfarin sex ár gekk úr samtökunum og því var kosið um nýjan formann. Edda Sif Pálsdóttir íþróttafréttamaður á RÚV var kjörinn formaður SÍ til næstu tveggja ára. Edda var áður ritari stjórnar samtakanna og hafði verið frá árinu 2019. Hún er jafnframt fyrsta konan í 69 ára sögu Samtaka íþróttafréttamanna til að…

Lesa meira

Glódís Perla er Íþróttamaður ársins 2024

Knattspyrnukonan Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði Þýskalandsmeistara Bayern München og íslenska landsliðsins var í gærkvöld útnefnd Íþróttamaður ársins 2024. Þetta var í níunda sinn sem kona hlýtur nafnbótina og hún er áttunda konan til að fá sæmdarheitið, þar af sú þriðja úr knattspyrnu á eftir Margréti Láru Viðarsdóttur og Söru Björk Gunnarsdóttur. Glódís Perla fékk fullt hús stiga í kjörinu eða 480 stig af jafn mörgum mögulegum. Í fyrsta sinn röðuðu konur sér í þrjú efstu sæti kjörsins. Kraftlyftingakonan Sóley Margrét Jónsdóttir hafnaði í öðru sæti og Eygló Fanndal Sturludóttir úr…

Lesa meira