Aðalfundir 

Viðburðarríkt starfsár gert upp á aðalfundi

Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna árið 2026 var haldinn í hádeginu. Þar var farið yfir síðasta starfsár stjórnar og bar þar hæst veisluhöld í tilefni 70 ára afmælis SÍ, Norðurlandaþing í Danmörku síðasta haust og Íþróttamaður ársins 2025. Þá framlengdi SÍ í júní á síðasta ári samning við KSÍ um að manna sjónlýsingar á heimaleikjum A-landsliða Íslands í fótbolta á Laugardalsvelli. Þetta samstarf er samvinnuverkefni KSÍ, SÍ og Blindrafélags Íslands og hófst árið 2023. Þá gerði KSÍ samning við SÍ til tveggja ára sem var svo endurnýjaður í fyrra út árið 2026.…

Lesa meira
Aðalfundir 

Edda Sif nýr formaður

Ný stjórn Samtaka íþróttafréttamanna. Frá vinstri: Valur Páll Eiríksson ritari, Edda Sif Pálsdóttir formaður og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson gjaldkeri. Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna var haldinn í dag í sal Blaðamannafélags Íslands. Tómas Þór Þórðarson sem hefur verið formaður SÍ undanfarin sex ár gekk úr samtökunum og því var kosið um nýjan formann. Edda Sif Pálsdóttir íþróttafréttamaður á RÚV var kjörinn formaður SÍ til næstu tveggja ára. Edda var áður ritari stjórnar samtakanna og hafði verið frá árinu 2019. Hún er jafnframt fyrsta konan í 69 ára sögu Samtaka íþróttafréttamanna til að…

Lesa meira

Óbreytt stjórn

Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna var haldinn þriðjudaginn 30. maí. Tómas Þór Þórðarson var endurkjörinn formaður til tveggja ára og þau Edda Sif Pálsdóttir ritari og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson gjaldkeri bæði til eins árs í viðbót. Einar Örn Jónsson og Sindri Sverrisson eru áfram varamenn og Ingvi Þór Sæmundsson og Bjarni Helgason skoðunarmenn reikinga. Rætt var um nafnabreytingu á kjöri Íþróttamanns ársins. Engin niðurstaða fékkst í það mál, en fundarmenn voru sammála að þörf væri á því að ræða það af fullri alvöru í takt við nýja og breytta tíma. Umræðum um…

Lesa meira