Sportpress.is fær andlitslyftingu

Vefsíða Samtaka íþróttafréttamanna, www.sportpress.is hefur nú verið í loftinu í 20 ár, en henni var komið á fót á 50 ára afmælisári SÍ árið 2006. Það er því við hæfi á 70 ára afmælisári samtakanna að vefsíðan fái smá andlitslyftingu. Öll gögn sem hafa verið á síðunni eru áfram aðgengileg, en töflur með niðurstöðum úr kjörinu á Íþróttamanni ársins, þjálfara ársins og liði ársins ættu nú að vera aðgengilegri á viðkomandi undirsíðum. Töflurnar eru í sama stíl og sú sem hér er birt:
| Ár | Þjálfari | Félag/Landslið | Íþrótt | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 2012 | Alfreð Gíslason | Kiel | Handbolti | 22 |
| 2013 | Alfreð Gíslason | Kiel | Handbolti | 54 |
| 2014 | Rúnar Páll Sigmundsson | Stjarnan | Fótbolti | 69 |
| 2015 | Heimir Hallgrímsson | Ísland | Fótbolti | 124 |
| 2016 | Dagur Sigurðsson | Þýskaland | Handbolti | 67 |
| 2017 | Heimir Hallgrímsson | Ísland | Fótbolti | 135 |
| 2018 | Kristján Andrésson | Svíþjóð | Handbolti | 98 |
| 2019 | Óskar Hrafn Þorvaldsson | Grótta | Fótbolti | 53 |
| 2020 | Elísabet Gunnarsdóttir | Kristianstad | Fótbolti | 133 |
| 2021 | Þórir Hergeirsson | Noregur | Handbolti | 131 |
| 2022 | Þórir Hergeirsson | Noregur | Handbolti | 131 |
| 2023 | Arnar B. Gunnlaugsson | Víkingur | Fótbolti | 122 |
| 2024 | Þórir Hergeirsson | Noregur | Handbolti | 116 |
| 2025 | Ágúst Þór Jóhannsson | Valur | Handbolti | 97 |
Þá hefur undirsíðum verið bætt við heimasíðuna. Bókin Hetjurnar okkar eftir Hallgrím Indriðason sem SÍ gáfu út árið 2006 er nú aðgengileg til niðurhals í pdf. formi hér. Þá má finna yfirlit yfir heiðursmerkjahafa SÍ hér og fróðleik um síðustu Norðurlandaþing íþróttafréttamanna og upprifjun á 50 ára afmæli, 60 ára afmæli og 70 ára afmælishófi SÍ svo eitthvað sé nefnt.
