Mikil gleði í 70 ára afmælishófi SÍ

Fjölmenni var í 70 ára afmælishátíð Samtaka íþróttafréttamanna sem haldin var í salnum Gamla Kvennó á Icelandic Parliament Hotel við Austurvöll. Edda Sif Pálsdóttir formaður SÍ bauð gesti velkomna, Þorsteinn Gunnarsson fyrrverandi formaður hélt tölu og Ari Eldjárn skemmti gestum. Þá voru veittar viðurkenningar og stjórnaði Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson viðurkenningaathöfninni með aðstoð Eddu Sifjar og Vals Páls Eiríkssonar.
Heiðursviðurkenningar í 70 ára afmælishófi Samtaka íþróttafréttamanna, 7. maí 2026
Silfurmerki Samtaka íþróttafréttamanna
Arnar Björnsson hlýtur silfurmerki fyrir störf sín sem íþróttafréttamaður í 35 ár. Arnar hóf störf við íþróttafréttamennsku hjá RÚV árið 1985 fyrst í útvarpi og svo í sjónvarpi og vann hjá RÚV til ársins 1997 þegar hann var keyptur yfir á Stöð 2. Þar starfaði Arnar sem íþróttafréttamaður til ársins 2020 eða samtals í 35 ár.

Guðjón Guðmundsson hlýtur silfurmerki fyrir störf sín sem íþróttafréttamaður í yfir 30 ár. Guðjón starfaði allan sinn íþróttafréttamannsferil hjá Stöð 2 og Bylgjunni og hóf þar störf í byrjun tíunda áratugarins. Þar starfaði Gaupi til ársins 2023 en er þó ekki alveg hættur því hann grípur stökum sinnum enn í hljóðnemann og lýsir handbolta í Sjónvarpi Símans. Eina.

Hafliði Breiðfjörð Guðmundsson hlýtur silfurmerki fyrir störf sín sem íþróttafréttamaður, íþróttaljósmyndari og framkvæmdastjóri í nærri aldarfjórðung. Hafliði stofnaði vefinn Fotbolti.net árið 2002 og var aðaleigandi og rekstraraðili vefsins þar til á síðasta ári þegar hann seldi vefinn nýjum eigendum. Auk þess að gera fotbolta.net að rótgrónum íþróttafréttamiðli hafa ljósmyndir Hafliða vakið mikla athygli, fyrst og fremst fótboltaljósmyndir hans, en á síðustu árum hefur hann einnig fylgt Handbolta.is á stórmót karla og kvenna í handbolta og tekið þar eftirtektarverðar myndir.

Henry Birgir Gunnarsson hlýtur silfurmerki fyrir störf sín sem íþróttafréttamaður í aldarfjórðung. Henry skrifaði sína fyrstu íþróttapistla í fjölmiðla laust fyrir aldamót og var svo orðinn fastráðinn íþróttafréttamaður á DV árið 2002 og lýsti sama sumar leikjum á HM í fótbolta á Sýn. Hann hefur starfað samfleytt frá árinu 2002 á DV, Fréttablaðinu, Vísi, Stöð 2, Bylgjunni og Sýn og er í dag fréttastjóri íþrótta hjá Sýn.

Hörður Magnússon hlýtur silfurmerki fyrir störf sín sem íþróttafréttamaður í rúman aldarfjórðung. Hörður hóf störf sem íþróttafréttamaður hjá Stöð 2 og Bylgjunni um aldamótin, meðan hann var að ljúka sínum knattspyrnuferli hjá FH. Hann starfaði hjá Stöð 2 til ársins 2019 en hefur síðan þá verið fengist við íþróttalýsingar hjá Viaplay, RÚV og Sjónvarpi Símans. Hörður er einmitt við störf í kvöld á oddaleik Vals og FH í handbolta, en fær merkið sitt afhent við fyrsta tækifæri.
Óskar Ófeigur Jónsson hlýtur silfurmerki fyrir störf sín sem íþróttafréttamaður í 30 ár. Óskar Ófeigur varð lausapenni hjá DV aðeins tvítugur árið 1996 og tók svo við íþróttasíðu barna og unglinga árið 1998 hjá blaðinu. Óskar Ófeigur hefur undanfarna þrjá áratugi fjallað af eljusemi um íþróttir í DV, Fréttablaðið og Vísi, auk þess að vera einn fremsti tölfræðingur landsins, ekki síst þegar kemur að körfubolta.

Sigurður Elvar Þórólfsson hlýtur silfurmerki fyrir störf sín sem formaður Samtaka íþróttafréttamanna. Sigurður Elvar hóf störf við íþróttafréttamennsku á Morgunblaðinu árið 2000. Hann varð umsjónarmaður íþrótta ásamt Víði Sigurðssyni árið 2008, en söðlaði um og tók við sem fréttastjóri íþrótta hjá 365 árið 2010 og starfaði þar til 2013. Sigurður Elvar sat í stjórn Samtaka íþróttafréttamanna í fjögur ár á árunum 2009 til 2013, öll árin sem formaður. Elvar komst ekki í kvöld, en fær merkið sitt afhent við fyrsta tækifæri.
Tómas Þór Þórðarson hlýtur silfurmerki fyrir störf sín í þágu Samtaka íþróttafréttamanna. Tómas Þór hóf störf sem íþróttafréttamaður á DV árið 2007 og starfaði þar fyrstu árin sín í íþróttafréttamennsku áður en hann réðist til Morgunblaðsins, Vísis og Stöðvar 2 og að lokum til Sjónvarps Símans þar sem hann var umsjónarmaður enska boltans. Tómas sat í stjórn Samtaka íþróttafréttamanna í átta ár, fyrstu tvö árin sem ritari en frá árinu 2019 þar til í fyrra sem formaður.

Valtýr Björn Valtýsson hlýtur silfurmerki fyrir störf sín sem íþróttafréttamaður í ríflega 30 ár. Valtýr hóf störf sem íþróttafréttamaður seint á níunda áratug síðustu aldar og starfaði lengst af hjá Stöð 2 og Bylgjunni, en hefur einnig sinnt íþróttafréttamennsku hjá DV, RÚV og SportTV. Valtýr var um tíma yfirmaður íþróttadeildar Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Þá hélt Valtýr úti vinsælum útvarpsþætti um íþróttir um árabil, „Mín skoðun“ sem hann heldur raunar enn út í hlaðvarpsformi.

Þorsteinn Gunnarsson hlýtur silfurmerki fyrir störf sín í þágu Samtaka íþróttafréttamanna. Þorsteinn hóf störf hjá Stöð 2 og Bylgjunni um aldamótin og starfaði sem íþróttafréttamaður til ársins 2009. Hann sat í stjórn Samtaka íþróttafréttamanna um sex ára skeið og gegndi formennsku í Samtökunum í þrjú ár frá 2006 til 2009. Í formannstíð Þorsteins var haldið veglega upp á 50 ára afmæli SÍ og heimasíða samtakanna hefur aldrei verið uppfærð jafn oft með fréttum úr faginu og þegar Þorsteinn var formaður.

Gullmerki Samtaka íþróttafréttamanna
Eiríkur Stefán Ásgeirsson hlýtur gullmerki fyrir störf sín í þágu Samtaka íþróttafréttamanna. Eiríkur hóf störf sem íþróttafréttamaður á DV laust eftir aldamót en hefur starfað lengst af sem íþróttafréttamaður hjá Vísi og svo Fréttablaðinu og Stöð 2. Síðustu ár hefur Eiríkur verið íþróttastjóri Sýnar. Eiríkur Stefán sat í stjórn Samtaka íþróttafréttamanna í tíu ár, sem ritari árin 2009 til 2013 og svo sem formaður í sex ár á árunum 2013 til 2019. Eiríkur var atorkusamur formaður, lét til sín taka í alþjóðamálum, skipulagði glæsilegt Norðurlandaþing á Íslandi árið 2017 og síðast en ekki síst breytti hann tekjumódeli samtakanna. Sem formaður samdi Eiríkur við fyrirtæki í Ólympíufjölskyldu ÍSÍ um að gerast líka bakhjarlar SÍ, sem gjörbreytti ársreikningi samtakanna sem hafa staðið afar vel undanfarin ár. Það er því í raun tekjumódeli Eiríks að þakka að við getum haldið veglega um á 70 ára afmælið í kvöld.

Jón Kristján Sigurðsson hlýtur gullmerki fyrir störf sín í þágu Samtaka íþróttafréttamanna. Jón Kristján hóf störf sem íþróttafréttamaður á níunda áratugnum og starfaði lengst af hjá DV en síðar hjá UMFÍ. Jón Kristján var kjörinn í stjórn Samtaka íþróttafréttamanna árið 1987 og sat í stjórninni til ársins 2017 eða í 30 ár. Enginn þeirra sem hefur verið í stjórn SÍ kemst nálægt þessari tölu sem Jón Kristján afrekaði. Það er í raun ótrúlegt að einn og sami maðurinn hafi starfað fyrir samtökin í stjórn í 30 ár af þeim 70 sem þau hafa verið til.

Víðir Sigurðsson hlýtur gullmerki fyrir störf sín sem íþróttafréttamaður í tæplega hálfa öld. Víðir skrifaði fyrst um knattspyrnuleiki á Austfjörðum fyrir Dagblaðið á áttunda áratugnum og varð þar fastur starfsmaður í fullu starfi í Reykjavík árið 1981 en sama ár voru Dagblaðið og Vísir sameinuð í DV. Víðir hóf þá störf á Þjóðviljanum og var íþróttafréttamaður þar í sjö ár eða til ársins 1988 þegar hann réði sig hjá DV og vann þar til ársins 2000 þegar hann hóf störf hjá Morgunblaðinu. Þar var Víðir íþróttafréttamaður í 26 ár, þar af sem umsjónarmaður íþrótta í rúm 18 ár eða frá árinu 2008. Þá hefur Víðir gefið út bókaflokkinn vinsæla Íslensk knattspyrna frá árinu 1981, fyrsta árið með Sigurði Sverrissyni, en svo einn frá árinu 1982. Víðir hefur að auki skrifað fleiri bækur um íþróttir sem komið hafa út. Enginn íþróttafréttamaður hefur átt félagsaðild í Samtök íþróttafréttamanna lengur en Víðir, því hann varð félagi í SÍ árið 1981 og er því jafnframt sá félagi sem oftast hefur kosið í kjörinu á Íþróttamanni ársins eða 45 sinnum.

Meðfylgjandi myndir úr hófinu tók Hafliði Breiðfjörð.


























































































