Handbolti.is hættir

Ívar Benediktsson tilkynnti í dag að hann hefði lokað vef sínum, Handbolti.is frá og með deginum í dag. Ívar hefur ásamt eiginkonu sinni Kristínu B. Reynisdóttur haldið vefsíðunni úti frá því haustið 2020. Í tilkynningunni segir að sífellt meira tap á útgáfunni frá því í ársbyrjun í fyrra hafi orðið til þess að þau hjónin hafi ákveðið að loka vefnum. Ívar hefur starfað sem íþróttafréttamaður í ríflega þrjá áratugi, lengst af hjá Morgunblaðinu og verið meðlimur í Samtökum íþróttafréttamanna frá árinu 1996. Þá var Ívar formaður 1998-1999. Á sama tíma…

Lesa meira