Fréttir úr starfinu 

Handbolti.is hættir

Ívar Benediktsson tilkynnti í dag að hann hefði lokað vef sínum, Handbolti.is frá og með deginum í dag. Ívar hefur ásamt eiginkonu sinni Kristínu B. Reynisdóttur haldið vefsíðunni úti frá því haustið 2020. Í tilkynningunni segir að sífellt meira tap á útgáfunni frá því í ársbyrjun í fyrra hafi orðið til þess að þau hjónin hafi ákveðið að loka vefnum. Ívar hefur starfað sem íþróttafréttamaður í ríflega þrjá áratugi, lengst af hjá Morgunblaðinu og verið meðlimur í Samtökum íþróttafréttamanna frá árinu 1996. Þá var Ívar formaður 1998-1999. Á sama tíma…

Lesa meira

Fimm nýir félagar

Á árlegum desemberfundi Samtaka íþróttafréttamanna í dag þar sem farið var yfir árið og nýjustu mál voru einnig fimm nýir félagar teknir inn í SÍ. Það eru Anna Sigrún Davíðsdóttir á RÚV, Ágúst Orri Arnarson hjá Sýn, Bjarni Helgason á Morgunblaðinu og mbl.is, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson hjá Fótbolta.net og Sæbjörn Steinke hjá Fótbolta.net. Félagsmenn eru nú 30 talsins í það minnsta fram að næsta aðalfundi. Gunnar Egill Daníelsson hætti störfum hjá Morgunblaðinu og mbl.is í nóvember en heldur aðild sinni í SÍ fram að næsta aðalfundi. Fram undan er árlegt…

Lesa meira

Guðmundur á AIPS námskeiði á Möltu

Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson íþróttafréttamaður hjá fotbolta.net hefur undanfarna daga verið á Möltu á námskeiði fyrir unga íþróttafréttamenn. Námskeiðið er haldið af AIPS, Alþjóða samtökum íþróttafréttamanna í samvinnu við UEFA, Evrópska knattspyrnusambandið. Námskeiðið er haldið í tengslum við Evrópumót 19 ára karlalandsliða í fótbolta. AIPS óskaði eftir því við Samtök íþróttafréttamanna í vor að senda íslenskan íþróttafréttamann á námskeiðið. Niðurstaðan varð sú að Guðmundur Aðalsteinn fór og gat notað jafnframt notað ferðina til að vinna efni fyrir fotbolta.net frá EM 19 ára á Möltu. AIPS greiddi ferðakostnað, gistingu og uppihald. Guðmundur…

Lesa meira