Fréttir úr starfinu 

Handbolti.is hættir

Ívar Benediktsson tilkynnti í dag að hann hefði lokað vef sínum, Handbolti.is frá og með deginum í dag. Ívar hefur ásamt eiginkonu sinni Kristínu B. Reynisdóttur haldið vefsíðunni úti frá því haustið 2020. Í tilkynningunni segir að sífellt meira tap á útgáfunni frá því í ársbyrjun í fyrra hafi orðið til þess að þau hjónin hafi ákveðið að loka vefnum.

Ívar hefur starfað sem íþróttafréttamaður í ríflega þrjá áratugi, lengst af hjá Morgunblaðinu og verið meðlimur í Samtökum íþróttafréttamanna frá árinu 1996. Þá var Ívar formaður 1998-1999. Á sama tíma og Samtök íþróttafréttamanna harma það að Handbolti.is hafi hætt útgáfu sinni þakkar SÍ Ívari fyrir hans mikla og góða framlag til íþróttafréttamennsku hingað til og vonast til þess að hann hafi ekki sungið sitt síðasta í íþróttaumfjöllun.

Síðustu fréttir