Andlát 

Steinar J. Lúðvíksson látinn

Steinar J. Lúðvíksson fyrrverandi formaður Samtaka íþróttafréttamanna er látinn, 84 ára að aldri. Greint er frá andláti hans á vef mbl. Steinar var formaður SÍ 1977-1978 og starfaði sem blaðamaður í áraraðir. Hann var mikill íþróttaáhugamaður og eftir hann liggur fjöldi bóka um íþróttasögu. Er hann einn afkastamesti rithöfundur Íslands í íþróttabókaútgáfu. Steinar var sæmdur silfurmerki Samtaka íþróttafréttamanna í 50 ára afmælishófi SÍ árið 2006. Samtök íþróttafréttamanna minnast framlags Steinars til samtakanna og til íslenskra íþrótta með hlýhug og þakklæti.

Lesa meira
Afmæli 

Samtök íþróttafréttamanna 70 ára

Í dag, 14. febrúar fagna Samtök íþróttafréttamanna 70 ára afmæli því samtökin voru stofnuð á þessum degi árið 1956. Stofnfélagarnir voru fjórir: Atli Steinarsson sem varð formaður, Frímann Helgason, Hallur Símonarson og Sigurður Sigurðsson. Samtökin voru stofnuð í þeim tilgangi að berjast fyrir bættri vinnuaðstöðu íþróttafréttamanna og að kjósa íþróttamann ársins. Samtökin voru stofnuð á skrifstofu Halls Símonarssonar, blaðamanns á Tímanum, í Edduhúsinu. Í fundargerðarbók samtakanna segir: „Þann 14. febrúar 1956 komu þeir Atli Steinarsson, Frímann Helgason, Hallur Símonarson og Sigurður Sigurðsson saman til fundar í þeim tilgangi að stofna…

Lesa meira
Íþróttamaður ársins 

Eygló Fanndal er Íþróttamaður ársins 2025

Lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir var í kvöld útnefnd Íþróttamaður ársins 2025 af Samtökum íþróttafréttamanna. Þetta var í 70. sinn sem SÍ veita nafnbótina. Þetta er í tíunda sinn sem kona hlýtur sæmdarheitið en alls hafa níu konur fagnað sigri í kjörinu. Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir er eina konan sem hefur hreppt titilinn tvisvar. Eygló varð á árinu Evrópumeistari í -71 kg flokki í ólympískum lyftingum þar sem hún lyfti samanlagt 244 kílóum. Það var hærri samanlögð þyngd en Evrópumeistararnir í -76 kg og í -81 kg flokkum lyftu. Eygló varð…

Lesa meira