Í dag, 14. febrúar fagna Samtök íþróttafréttamanna 70 ára afmæli því samtökin voru stofnuð á þessum degi árið 1956. Stofnfélagarnir voru fjórir: Atli Steinarsson sem varð formaður, Frímann Helgason, Hallur Símonarson og Sigurður Sigurðsson. Samtökin voru stofnuð í þeim tilgangi að berjast fyrir bættri vinnuaðstöðu íþróttafréttamanna og að kjósa íþróttamann ársins.
Samtökin voru stofnuð á skrifstofu Halls Símonarssonar, blaðamanns á Tímanum, í Edduhúsinu. Í fundargerðarbók samtakanna segir:
„Þann 14. febrúar 1956 komu þeir Atli Steinarsson, Frímann Helgason, Hallur Símonarson og Sigurður Sigurðsson saman til fundar í þeim tilgangi að stofna félag með sér er miði að því að vinna að betri aðstöðu við störf þeirra á íþróttavettvangi. Urðu allir sammála um að stofna þetta félag nú þegar. Rætt var um að fastir félagar með fullum réttindum skyldu þeir vera er skrifuðu um allar íþróttir fyrir dagblöð, íþróttablaðið og sá er flytur að staðaldri fréttir um íþróttir í útvarpi. Ennfremur að þeir sem skrifuðu um einstakar greinar yrðu sem óreglulegir félagar. Samþykkt var að fela Atla Steinarssyni að semja og gera tillögur um lög fyrir félagið og leggja þar fyrir næsta fund félagsins. Þá var ákveðið að kjósa formann og ritara fyrir félagið, og hlutu þessir kosningu: Atli Steinarsson formaður og Frímann Helgason ritari. Fleiri ekki gert. – Frímann Helgason.“
Í tilefni 50 ára afmælis SÍ árið 2006 birtist eftirfarandi viðtal við Atla Steinarsson í Morgunblaðinu um kjör Íþróttamanns ársins við þau tímamót að gamli verðlaunagripurinn skyldi tekinn úr notkun og nýr tæki við: „Við ætluðum að hafa þetta í fimmtíu ár og því varð að fá styttu sem gat staðist tímans tönn og öll fimmtíu árin,“ sagði Atli og bætti við að leitin hafi tekið sinn tíma. „Það var ekki auðfengið en eftir nokkuð langa leit kom til okkar Árni Árnason, sem þá var að byrja með sína heildsölu í Austurbakka. Árni kom með myndir af styttum og höfðum við allmikið myndaúrval til að velja úr, líklega á milli tíu og tuttugu, og meðal annars af þessari styttu. Við völdum hana og mér finnst enn í dag valið hafa tekist afskaplega vel.“
Styttan sem fyrir valinu varð er frá Bandaríkjunum og kostaði þá rúmar sex þúsund krónur. Atli segir að nokkuð erfitt hafi verið fyrir nýstofnuð og blönk samtök að afla fjár fyrir styttunni en með samheldnu átaki og velvild dagblaða, fyrirtækja og vina og vandamanna hafi verið hægt að fjármagna kaupin.
Þegar styttan kom til landsins þurfti að gera á henni smávægilegar breytingar. Renna þurfti stall úr timbri undir styttuna þar sem hann fylgdi ekki með og gera ráð fyrir skildinum sem á henni er og fimmtíu litlum skjöldum sem bera áttu nöfn íþróttamanna ársins næstu fimmtíu ár.
Nýr verðlaunagripur var svo kynntur árið 2006 hannaður af Sigurði Inga Bjarnasyni gullsmiði í Sign og hefur verið afhentur síðan.
SÍ óskar félagsfólki sínu til hamingju með daginn, en stefnt er að því að halda 70 ára afmælishóf á vormánuðum.
