Afmæli 

Mikil gleði í 70 ára afmælishófi SÍ

Fjölmenni var í 70 ára afmælishátíð Samtaka íþróttafréttamanna sem haldin var í salnum Gamla Kvennó á Icelandic Parliament Hotel við Austurvöll. Edda Sif Pálsdóttir formaður SÍ bauð gesti velkomna, Þorsteinn Gunnarsson fyrrverandi formaður hélt tölu og Ari Eldjárn skemmti gestum. Þá voru veittar viðurkenningar og stjórnaði Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson viðurkenningaathöfninni með aðstoð Eddu Sifjar og Vals Páls Eiríkssonar. Heiðursviðurkenningar í 70 ára afmælishófi Samtaka íþróttafréttamanna, 7. maí 2026 Silfurmerki Samtaka íþróttafréttamanna Arnar Björnsson hlýtur silfurmerki fyrir störf sín sem íþróttafréttamaður í 35 ár. Arnar hóf störf við íþróttafréttamennsku hjá RÚV…

Lesa meira
Afmæli 

Samtök íþróttafréttamanna 70 ára

Í dag, 14. febrúar fagna Samtök íþróttafréttamanna 70 ára afmæli því samtökin voru stofnuð á þessum degi árið 1956. Stofnfélagarnir voru fjórir: Atli Steinarsson sem varð formaður, Frímann Helgason, Hallur Símonarson og Sigurður Sigurðsson. Samtökin voru stofnuð í þeim tilgangi að berjast fyrir bættri vinnuaðstöðu íþróttafréttamanna og að kjósa íþróttamann ársins. Samtökin voru stofnuð á skrifstofu Halls Símonarssonar, blaðamanns á Tímanum, í Edduhúsinu. Í fundargerðarbók samtakanna segir: „Þann 14. febrúar 1956 komu þeir Atli Steinarsson, Frímann Helgason, Hallur Símonarson og Sigurður Sigurðsson saman til fundar í þeim tilgangi að stofna…

Lesa meira