Andlát 

Steinar J. Lúðvíksson látinn

Steinar J. Lúðvíksson fyrrverandi formaður Samtaka íþróttafréttamanna er látinn, 84 ára að aldri. Greint er frá andláti hans á vef mbl. Steinar var formaður SÍ 1977-1978 og starfaði sem blaðamaður í áraraðir. Hann var mikill íþróttaáhugamaður og eftir hann liggur fjöldi bóka um íþróttasögu. Er hann einn afkastamesti rithöfundur Íslands í íþróttabókaútgáfu. Steinar var sæmdur silfurmerki Samtaka íþróttafréttamanna í 50 ára afmælishófi SÍ árið 2006. Samtök íþróttafréttamanna minnast framlags Steinars til samtakanna og til íslenskra íþrótta með hlýhug og þakklæti.

Lesa meira

Bjarni Fel látinn

Bjarni Felixson fyrrverandi íþróttafréttamaður Ríkisútvarpsins og fyrrverandi formaður Samtaka íþróttafréttamanna er látinn, áttatíu og sex ára að aldri. Bjarni fæddist hinn 27. desember árið 1936. Hann lék knattspyrnu með KR við góðan orðstír og lék sex landsleiki fyrir hönd Íslands. Bjarni hóf störf hjá Sjónvarpinu árið 1969 sem umsjónarmaður enska fótboltans, sem þá var tekinn til sýninga á Íslandi. Frá 1972 varð Bjarni svo starfsmaður Sjónvarpsins í fullu starfi sem íþróttafréttamaður og gegndi því starfi í á fjórða áratug. Hann varð þjóðþekktur íþróttafréttamaður sem ruddi brautina fyrir þá sem á…

Lesa meira