Ómar Ingi Magnússon er íþróttamaður ársins 2021

Úrslitin í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins 2021 eru ljós. Handboltamaðurinn Ómar Ingi Magnússon handboltamaður hjá Magdeburg í Þýskalandi hlaut titilinn í ár. Hann er tíundi handboltamaðurinn frá upphafi kjörsins 1956 sem hlýtur nafnbótina. Áður höfðu Sigríður Sigurðardóttir (1964), Geir Hallsteinsson (1968), Hjalti Einarsson (1971), Alfreð Gíslason (1989), Geir Sveinsson (1997), Ólafur Stefánsson (2002, 2003, 2008 og 2009), Guðjón Valur Sigurðsson (2006), Alexander Petersson (2010) og Aron Pálmarsson (2012) hlotið titilinn. Níu ár eru síðan handboltamaður varð hlutskarpastur síðast í kjörinu. Þetta er í þrettánda sinn sem handboltamaður vinnur.…

Lesa meira

Efstu í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2021

Samtök íþróttafréttamanna opinberuðu í dag, Þorláksmessu hverjir fengu flest atkvæði samtakanna í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2021. Samtökin hafa staðið fyrir kjörinu frá árinu 1956 og er kjörið jafn gamalt samtökunum. Frá og með árinu 2012 hafa samtökin svo einnig valið lið ársins og þjálfara ársins. Úrslitin í kjörinu verða kunngjörð í beinni útsendingu RÚV að kvöldi 29. desember. Upplýsingar um tíu efstu í kjöri íþróttamanns ársins og þrjá efstu í kjörinu á liði ársins og þjálfara ársins má finna hér fyrir neðan. Tíu efstu í kjöri Íþróttamanns ársins 2021…

Lesa meira
Íþróttamaður ársins 

1974 & 1984 | Ásgeir Sigurvinsson

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Ásgeir Sigurvinsson er einn besti knattspyrnumaður sem Ísland hefur átt og það skilaði honum titlinum íþróttamaður ársins tvisvar sinnum, 1974 og 1984. Hátindi ferils síns náði hann einmitt seinna árið, þegar hann náði einstökum árangri með Stuttgart, bæði Þýskalandsmeistaratitli og besti leikmaður deildarinnar, en hann var fyrsti útlendingurinn til að ná þeim titli í áratugi. Ásgeir Sigurvinsson er fæddur í Vestmannaeyjum 1955 og ólst þar upp. Knattspyrnuáhuginn kom snemma í ljós hjá honum og hann byrjaði að æfa 5-6 ára gamall. Hann segir…

Lesa meira