Uppfærslur 

Sportpress.is fær andlitslyftingu

Vefsíða Samtaka íþróttafréttamanna, www.sportpress.is hefur nú verið í loftinu í 20 ár, en henni var komið á fót á 50 ára afmælisári SÍ árið 2006. Það er því við hæfi á 70 ára afmælisári samtakanna að vefsíðan fái smá andlitslyftingu. Öll gögn sem hafa verið á síðunni eru áfram aðgengileg, en töflur með niðurstöðum úr kjörinu á Íþróttamanni ársins, þjálfara ársins og liði ársins ættu nú að vera aðgengilegri á viðkomandi undirsíðum. Töflurnar eru í sama stíl og sú sem hér er birt: Þá hefur undirsíðum verið bætt við heimasíðuna.…

Lesa meira
Andlát 

Steinar J. Lúðvíksson látinn

Steinar J. Lúðvíksson fyrrverandi formaður Samtaka íþróttafréttamanna er látinn, 84 ára að aldri. Greint er frá andláti hans á vef mbl. Steinar var formaður SÍ 1977-1978 og starfaði sem blaðamaður í áraraðir. Hann var mikill íþróttaáhugamaður og eftir hann liggur fjöldi bóka um íþróttasögu. Er hann einn afkastamesti rithöfundur Íslands í íþróttabókaútgáfu. Steinar var sæmdur silfurmerki Samtaka íþróttafréttamanna í 50 ára afmælishófi SÍ árið 2006. Samtök íþróttafréttamanna minnast framlags Steinars til samtakanna og til íslenskra íþrótta með hlýhug og þakklæti.

Lesa meira
Afmæli 

Samtök íþróttafréttamanna 70 ára

Í dag, 14. febrúar fagna Samtök íþróttafréttamanna 70 ára afmæli því samtökin voru stofnuð á þessum degi árið 1956. Stofnfélagarnir voru fjórir: Atli Steinarsson sem varð formaður, Frímann Helgason, Hallur Símonarson og Sigurður Sigurðsson. Samtökin voru stofnuð í þeim tilgangi að berjast fyrir bættri vinnuaðstöðu íþróttafréttamanna og að kjósa íþróttamann ársins. Samtökin voru stofnuð á skrifstofu Halls Símonarssonar, blaðamanns á Tímanum, í Edduhúsinu. Í fundargerðarbók samtakanna segir: „Þann 14. febrúar 1956 komu þeir Atli Steinarsson, Frímann Helgason, Hallur Símonarson og Sigurður Sigurðsson saman til fundar í þeim tilgangi að stofna…

Lesa meira