Viðburðarríkt starfsár gert upp á aðalfundi

Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna árið 2026 var haldinn í hádeginu. Þar var farið yfir síðasta starfsár stjórnar og bar þar hæst veisluhöld í tilefni 70 ára afmælis SÍ, Norðurlandaþing í Danmörku síðasta haust og Íþróttamaður ársins 2025. Þá framlengdi SÍ í júní á síðasta ári samning við KSÍ um að manna sjónlýsingar á heimaleikjum A-landsliða Íslands í fótbolta á Laugardalsvelli. Þetta samstarf er samvinnuverkefni KSÍ, SÍ og Blindrafélags Íslands og hófst árið 2023. Þá gerði KSÍ samning við SÍ til tveggja ára sem var svo endurnýjaður í fyrra út árið 2026. Enn fremur réðist SÍ í það að fríska upp á vef samtakanna og hafði Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson veg og vanda að því.
Einnig fundaði stjórn SÍ með Landssambandi hestmannafélaga á síðasta starfsári að ósk LH, og átti tvo fundi með forseta og framkvæmdastjóra ÍSÍ sem sneru að Íþróttamanni ársins. SÍ og ÍSÍ hafa ákveðið að skipa fimm manna starfshóp sem er falið að gera viðburðinn í kringum útnefninguna á Íþróttamanni ársins stærri og flottari. SÍ mun eiga tvo fulltrúa í samráðshópnum, ÍSÍ tvo og lagt er upp með að fimmta manneskjan verði fyrrverandi íþróttamaður ársins. Vilji aðalfundar SÍ er að bæta við minnst einum verðlaunaflokki og horfir þá sérstaklega í að veita verðlaun fyrir íþróttaaugnablik ársins sem almenningur fengi að kjósa í netkosningu.
Hagnaður af reikningsárinu 2025 var 329.145 krónur. Helstu tekjur SÍ koma frá samstarfsaðilunum, Icelandair, Íslenskri getspá, Sjóvá og Toyota en stærsti kostnaðarliður síðasta árs var vegna þátttöku Íslands á Norðurlandaþingi íþróttafréttamanna í Kaupmannahöfn. SÍ þurfti að greiða hluta af gistingu sinna þátttakenda og hluta af uppihaldi vegna fjárhagsstöðu dönsku samtakanna. Ráðgert er að næsta Norðurlandaþing verði haldið á Íslandi vorið 2027. Sjóðir SÍ standa vel en þó er ljóst að leitast þarf eftir frekari fjárstuðningi til að fjárhagsárið 2027 verði ekki rekið með of miklu tapi vegna fyrirhugaðs Norðurlandaþings.
Engar umsóknir um félagsaðild lágu fyrir, en Víðir Sigurðsson gengur nú úr samtökunum eftir 45 ára veru. Víði var veitt gullmerki SÍ í 70 ára afmælishófinu í síðustu viku og er honum þakkað ómetanlegt starf til íslenskrar íþróttafréttamennsku.
Ein lagabreytingartillaga lá fyrir og var hún samþykkt samhljóða. Hún sneri að síðustu málsgrein 7. greinar laganna og var: Til aðalfundar skal boðað með minnst viku fyrirvara á heimasíðu SÍ. Aðafundur er löglegur sé löglega til hans boðað. Málsgreinin er nú: Til aðalfundar skal boðað með minnst viku fyrirvara með rafrænum hætti. Aðafundur er löglegur sé löglega til hans boðað.
Þá voru ritari og gjaldkeri stjórnar endurkjörnir til eins árs þeir Valur Páll Eiríksson (ritari) og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson (gjaldkeri). Stjórnin er því óbreytt þar sem Edda Sif Pálsdóttir var kjörin formaður til tveggja ára á aðalfundi síðasta árs. Þeir Einar Örn Jónsson og Sindri Sverrisson voru endurkjörnir varamenn til eins árs og Ingvi Þór Sæmundsson félagskjörinn skoðunarmaður reikninga. Venju samkvæmt var ákveðið að árgjald félaga yrði óbreytt eða 0 krónur.
