Óbreytt stjórn og einn nýr félagi

Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna var haldinn í gær, 7. júní í fundarsal Blaðamannafélags Íslands. Tíu félagar sóttu fundinn. Einn nýr félagi var tekinn inn í samtökin, það er Gunnar Egill Daníelsson á Morgunblaðinu og mbl.is. Kristján Jónsson hjá sama miðli er kominn yfir í almennar fréttir og lætur því af aðild í SÍ. Þá er Hjörvar Ólafsson hættur á íþróttadeild Torgs og hættir sömuleiðis í SÍ. Tómas Þór Þórðarson var kjörinn formaður til tveggja ára á síðasta aðalfundi og því var ekki kosið um formann í ár. Edda Sif Pálsdóttir og…

Lesa meira

Aðalfundur 7. júní

Stjórn Samtaka íþróttafréttamanna boðar til aðalfundar samtakanna þriðjudaginn 7. júní kl. 12:00 í húsakynnum blaðamannafélags Íslands, Síðumúla 23. Venjuleg aðalfundarstörf á dagskrá og farið yfir ársreikning. Einnig verður kosið til tveggja sæta í stjórnar, auk varamanna. Stjórn SÍ.

Lesa meira

Farið yfir sögulegt ár á aðalfundi

Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna 2021 var haldinn í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands þann 12. maí. Fámennt var á fundinum þar sem reikningur síðasta árs var samþykktur einhljóma af fundargestum og þá fór stjórnin yfir árið 2020 sem var sögulegt, en að vissu leyti tíðindalítið vegna Covid 19. Tómas Þór Þórðarson var endurkjörinn formaður SÍ til næstu tveggja ára en hann tók við embættinu af Eiríki Stefáni Ásgeirssyni árið 2019. Edda Sif Pálsdóttir (ritari) og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson (gjaldkeri) fullmóta stjórn samtakanna með Tómasi.

Lesa meira