Júlían er Íþróttamaður ársins 2019

Júlían Jóhann Karl Jóhannsson kraftlyftingamaður úr Ármanni var í kvöld útnefndur Íþróttamaður ársins 2019. Þetta er í fyrsta sinn sem Júlían hlýtur heiðurinn. Martin Hermannsson körfuboltamaður hjá Alba Berlín í Þýskalandi varð annar og var 43 stigum á eftir Júlían. Sara Björk Gunnarsdóttir knattspyrnukona hjá Wolfsburg í Þýskalandi sem hlaut titilinn 2018 varð svo í 3. sæti.

Alls tóku 28 félagsmenn Samtaka íþróttafréttmanna þátt í kjörinu í ár. Tvö efstu liðin í kjörinu á liði ársins enduðu með jafn mörg stig. Samkvæmt reglugerð kjörsins skal þá horft til þess hvor liðið fékk fleiri atkvæði í 1. sæti. Kvennalið Vals í körfubolta hafði þar betur á móti kvennaliði Vals í handbolta. Þá var Óskar Hrafn Þorvaldsson sem þjálfaði karlalið Gróttu í fótbolta útnefndur þjálfari ársins 2019. Úrslitin urðu eftirfarandi:

Íþróttamaður ársins
1. Júlían J. K Jóhannsson, kraftlyftingar – 378
2. Martin Hermannsson, körfubolti – 335
3. Sara Björk Gunnarsdóttir, fótbolti – 289
4. Anton Sveinn McKee, sund – 244
5. Arnar Davíð Jónsson, keila – 218
6. Aron Pálmarsson, handbolti – 158
7. Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, frjálsíþróttir – 98
8. Glódís Perla Viggósdóttir, fótbolti – 61
9. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, golf – 55
10. Gylfi Þór Sigurðsson, fótbolti – 53

11. Már Gunnarsson, íþróttir fatlaðra – 30
12. Jóhann Skúlason, hestaíþróttir – 29
13. Helena Sverrisdóttir, körfubolti – 22
14. Ragnar Sigurðsson, fótbolti – 17
15. Haraldur Franklín Magnús, golf – 15
16. Arnór Þór Gunnarsson, handbolti – 13
17-18. Íris Björk Símonardóttir, handbolti – 6
17-18. Jón Axel Guðmundsson, körfubolti – 6
19-20. Kolbeinn Sigþórsson, fótbolti – 5
19-20. Jóhann Berg Guðmundsson, fótbolti – 5
21. Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþraut – 3
22. Elín Metta Jensen, fótbolti – 2
23-24. Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti – 1
23-24. Margrét Lára Viðarsdóttir, fótbolti – 1

Lið ársins

1. Kvennalið Vals í körfubolta – 58
2. Kvennalið Vals í handbolta – 58
3. Karlalið Selfoss í handbolta – 57

4. Karlalið Gróttu í fótbolta – 36
5. Karlalið KR í körfubolta – 20
6. Kvennalið Selfoss í fótbolta – 6
7. Karlalandslið Íslands í fótbolta – 5
8. Landslið Íslands í frjálsum íþróttum – 4
9-10. Kvennalið Stjörnunnar í hópfimleikum – 3
9-10. Kvennalandslið Íslands í fótbolta – 3
11. Karlalið KR í fótbolta – 2

Þjálfari ársins

1. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs Gróttu í fótbolta – 53
2. Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel í handbolta – 48
3. Patrekur Jóhannesson, þjálfari Selfoss í handbolta – 37

4. Vésteinn Hafsteinsson, kastþjálfari í frjálsum íþróttum – 32
5.-6. Ágúst Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Vals í handbolta – 23
5.-6. Darri Freyr Atlason, þjálfari kvennaliðs Vals í körfubolta – 23
7. Rúnar Kristinsson, þjálfari karlaliðs KR í körfubolta – 21
8. Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta – 11
9. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings í fótbolta – 2
10.-11. Aron Kristjánsson, þjálfari karlalandsliðs Barein í handbolta – 1
10.-11. Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss í fótbolta – 1