
Ný stjórn Samtaka íþróttafréttamanna. Frá vinstri: Valur Páll Eiríksson ritari, Edda Sif Pálsdóttir formaður og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson gjaldkeri.
Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna var haldinn í dag í sal Blaðamannafélags Íslands. Tómas Þór Þórðarson sem hefur verið formaður SÍ undanfarin sex ár gekk úr samtökunum og því var kosið um nýjan formann. Edda Sif Pálsdóttir íþróttafréttamaður á RÚV var kjörinn formaður SÍ til næstu tveggja ára.
Edda var áður ritari stjórnar samtakanna og hafði verið frá árinu 2019. Hún er jafnframt fyrsta konan í 69 ára sögu Samtaka íþróttafréttamanna til að taka við formennsku. Lista yfir alla formenn SÍ frá upphafi má sjá hér.
Valur Páll Eiríksson (Sýn) var kjörinn ritari og kemur hann nýr inn í stjórnina. Þá er Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson (RÚV) áfram gjaldkeri. Þorkell hefur átt sæti í stjórninni frá árinu 2013. Varamenn eru áfram Sindri Sverrisson (Sýn) og Einar Örn Jónsson (RÚV). Allir eru þeir kjörnir til eins árs setu.