Ólafía Þórunn er Íþróttamaður ársins

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, er Íþróttamaður ársins 2017 en kjöri Samtaka íþróttafréttamanna var lýst í hófi í Hörpu í kvöld. Knattspyrnumennirnir Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson voru í næstu sætum á eftir. Þetta er í fyrsta sinn í 62 ára sögu kjörsins að kylfingur hlýtur sæmdarheitið Íþróttamaður ársins en Ólafía Þórunn er sjötta konan sem verður fyrir valinu. Karlalandslið Íslands í knattspyrnu var valið lið ársins og Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, þjálfari ársins. Báðir aðilar hlutu fullt hús í kjörinu. Hér eftir fer heildarniðurstaða…

Lesa meira

Tíu tilnefndir sem Íþróttamaður ársins

Samtök íþróttafréttamanna hafa tilkynnt hvaða tíu íþróttamenn fengu flest atkvæði í kjöri Íþróttamanns ársins, sem kunngjört verður í Hörpu 28. desember 2017. Í þessum hópi hafa átta íþróttamenn verið áður á lista yfir tíu efstu í kjörinu en nýliðarnir í ár eru Jóhann Berg Guðmundsson, knattspyrnumaður, og kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir. Íþróttamaður ársins er nú valinn í 62. sinn og þjálfari og lið ársins í sjötta sinn. Bein útsending frá hófi Íþróttamanns ársins verður á Rúv þann 28. desember klukkan 19.40. Þessi eru tilnefnd í flokkunum þremur, í stafrófsröð: Íþróttamaður…

Lesa meira