Eygló Fanndal er Íþróttamaður ársins 2025

Lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir var í kvöld útnefnd Íþróttamaður ársins 2025 af Samtökum íþróttafréttamanna. Þetta var í 70. sinn sem SÍ veita nafnbótina. Þetta er í tíunda sinn sem kona hlýtur sæmdarheitið en alls hafa níu konur fagnað sigri í kjörinu. Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir er eina konan sem hefur hreppt titilinn tvisvar.

Eygló varð á árinu Evrópumeistari í -71 kg flokki í ólympískum lyftingum þar sem hún lyfti samanlagt 244 kílóum. Það var hærri samanlögð þyngd en Evrópumeistararnir í -76 kg og í -81 kg flokkum lyftu. Eygló varð einnig Evrópumeistari í jafnhendingu á mótinu þar sem hún lyfti 135 kg og fékk silfur í snörun með 109 kg, einu kílói minna en gullverðlaunahafinn. Eygló glímdi svo við meiðsli síðari hluta árs sem komu í veg fyrir þátttöku hennar á HM í október, þar sem hún hefði verið líkleg til afreka.

Ágúst Þór Jóhannsson var kjörinn þjálfari ársins og lið ársins 2025 er meistaraflokkur kvenna í handbolta hjá Val. Ágúst stýrði einmitt Valskonum sem urðu Íslands- og deildarmeistarar og Evrópubikarmeistarar. Valur varð þar með fyrsta íslenska kvennaliðið í hópíþrótt til að verða Evrópumeistari. Hér fyrir neðan má sjá hvernig stigin skiptust í kjörinu í ár. Allir 30 félagar í SÍ tóku þátt í kjörinu að þessu sinni.

Íþróttamaður ársins 2025

  1. Eygló Fanndal Sturludóttir, lyftingar – 532 stig
  2. Gísli Þorgeir Kristjánsson, handknattleikur – 458 stig
  3. Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleikur – 211 stig
  4. Dagur Kári Ólafsson, fimleikar – 143 stig
  5. Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna – 142 stig
  6. Hákon Arnar Haraldsson, knattspyrna – 115 stig
  7. Jón Þór Sigurðsson, skotfimi – 73 stig
  8. Snæfríður sól Jórunnardóttir, sund – 65 stig
  9. Hildur Maja Guðmundsdóttir, fimleikar – 59 stig
  10. Ómar Ingi Magnússon, handknattleikur – 51 stig
  11. Gunnlaugur Árni Sveinsson, golf – 47 stig
  12. Hanna Rún Óladóttir Bazev og Nikita Bazev, dans – 42 stig
  13. Cecilía Rán Rúnarsdóttir, knattspyrna – 38 stig
  14. Albert Guðmundsson, knattspyrna – 35 stig
  15. Thea Imani Sturludóttir, handknattleikur – 33 stig
  16. Viktor Gísli Hallgrímsson, handknattleikur – 32 stig
  17. Baldvin Þór Magnússon, frjálsíþróttir – 30 stig
  18. Konráð Valur Sveinsson, hestaíþróttir – 26 stig
  19. Elvar Már Friðriksson, körfuknattleikur – 23 stig
  20. Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir, skíði – 17 stig
  21. Elín Klara Þorkelsdóttir, handknattleikur – 12 stig
  22. -23. Ragnhildur Kristinsdóttir, golf – 2 stig
    Jóhann Berg Guðmundsson, knattspyrna – 2 stig
    24. Thelma Aðalsteinsdóttir, fimleikar – 2 stig

Þjálfari ársins 2025

  1. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, mfl. kv. í handbolta – 97 stig
  2. Dagur Sigurðsson, þjálfari karlalandsliðs Króatíu í handbolta – 71 stig
  3. Heimir Hallgrímsson, þjálfari karlalandsliðs Írlands í fótbolta – 38 stig
  4. Einar Jónsson, þjálfari Fram, mfl. kk. í handbolta – 24 stig
  5. Freyr Alexandersson, þjálfari karlaliðs Brann í fótbolta – 15 stig
  6. Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar mfl. kk. í körfubolta – 11 stig
  7. Sigurbjörn Bárðarson, landsliðsþjálfari í hestaíþróttum – 7 stig
  8. Ingi Gunnar Ólafsson, lyftingaþjálfari – 4 stig
  9. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings mfl. kk. í fótbolta – 3 stig

Lið ársins 2025

  1. Valur kvenna handbolta – 123 stig
  2. Breiðablik kvenna fótbolti – 64 stig
  3. Fram karla handbolti – 44 stig
  4. Íslenska landsliðið í hestaíþróttum – 22 stig
  5. Stjarnan kvenna hópfimleikar – 12 stig
  6. Víkingur karla fótbolti – 3 stig
  7. Karlalandslið íslands í handbolta – 1 stig
  8. KA kvenna í blaki – 1 stig