Tómas Þór nýr formaður SÍ
Á aðalfundi Samtaka íþróttafréttamanna sem haldinn var í dag var Tómas Þór Þórðarson kjörinn nýr formaður SÍ. Tómas tekur við af Eiríki Stefáni Ásgeirssyni sem gegndi formennsku í samtökunum frá árinu 2013. Tómas hefur verið félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 2008. Á þeim tíma hefur hann starfað sem íþróttafréttamaður hjá DV, Morgublaðinu og mbl.is, Stöð 2 Sport og Vísi, en starfar nú hjá Símanum. Tómas er þó ekki nýr í stjórn SÍ, því hann hafði verið ritari stjórnar frá 2017 og varamaður 2012-2017. Formaður er kjörinn til tveggja ára. Þorkell…
Lesa meira