Yfirlýsing frá stjórn SÍ

Reykjavík, 28. nóvember 2019. Stjórn Samtaka íþróttafréttamanna harmar uppsagnir í stéttinni sem áttu sér stað í dag og á síðustu vikum. Í dag var þremur íþróttafréttamönnum á Morgunblaðinu og mbl.is sagt upp og fyrir rétt rúmum mánuði síðan var öðrum sagt upp störfum hjá Sýn. Allir þessir fréttamenn eru mjög færir í sínu starfi og íþróttaumfjöllun í landinu mikilvægir en samanlagt hafa þeir um 80 ára reynslu í faginu. Einnig hafa þeir flestir komið með einum eða öðrum hætti beint að starfi Samtaka íþróttafréttamanna og verið lykilmenn í stéttinni um…

Lesa meira