Vilhjálmur Einarsson látinn
Þrístökkvarinn Vilhjálmur Einarsson lést að kvöldi 28. desember 2019, 85 ára að aldri. Afrek hans eru samofin fyrstu árum Samtaka íþróttafréttamanna enda voru samtökin stofnuð sama ár og Vilhjálmur vann silfurverðlaunin í Melbourne árið 1956 og kjör Íþróttamanns ársins komið á fót. Vilhjálms var minnst með eftirfarandi orðum í Morgunblaðinu 10. janúar 2020. Kveðja frá Samtökum íþróttafréttamanna Það var eiginlega ljóðrænt að Vilhjálmur skyldi kveðja sama kvöld og Íþróttamaður ársins var krýndur. Þá útnefningu hlaut Vilhjálmur fyrstur og oftast allra eða fimm sinnum. Það er í raun afreki hans á…
Lesa meira