Ágúst Orri á vegum AIPS í Bosníu
Þessa dagana er Ágúst Orri Arnarson íþróttafréttamaður hjá Sýn fyrir hönd Samtaka íþróttafréttamanna á Íslandi á alþjóðlegu námskeiði í Sarajevo í Bosníu. Námskeiðið er haldið af Alþjóða samtökum íþróttafréttamanna (AIPS) í samstarfi við Evrópska knattspyrnusambandið (UEFA). Námskeiðið er haldið í tengslum við Evrópumót 19 ára kvennalandsliða í fótbolta sem fer fram í Bosníu & Herzegovinu þessa dagana. Námskeiðishaldarar greiða ferðakostnað, gistingu og máltíðir fyrir þátttakendur. Ísland er meðal keppnisþjóða á Evrópumótinu og þess vegna fengu Samtök íþróttafréttamanna á Íslandi boð um að senda þátttakanda í námskeiðið. Þetta námskeið er hluti…
Lesa meira