Fréttir úr starfinu 

Ágúst Orri á vegum AIPS í Bosníu

Þessa dagana er Ágúst Orri Arnarson íþróttafréttamaður hjá Sýn fyrir hönd Samtaka íþróttafréttamanna á Íslandi á alþjóðlegu námskeiði í Sarajevo í Bosníu. Námskeiðið er haldið af Alþjóða samtökum íþróttafréttamanna (AIPS) í samstarfi við Evrópska knattspyrnusambandið (UEFA). Námskeiðið er haldið í tengslum við Evrópumót 19 ára kvennalandsliða í fótbolta sem fer fram í Bosníu & Herzegovinu þessa dagana. Námskeiðishaldarar greiða ferðakostnað, gistingu og máltíðir fyrir þátttakendur. Ísland er meðal keppnisþjóða á Evrópumótinu og þess vegna fengu Samtök íþróttafréttamanna á Íslandi boð um að senda þátttakanda í námskeiðið.

Þetta námskeið er hluti AIPS Young Reporter pógrammi AIPS, eða námskeið fyrir unga íþróttafréttamenn. Þetta er í sjötta sinn sem Ísland á fulltrúa á námskeiði fyrir unga íþróttafréttamenn haldið af AIPS. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson fór fyrsta slíka námskeiðið sem haldið var í Shenzhen í Kína sumarið 2011 í tengslum við Heimsleika stúdenta. Þorkell sótti svo annað námskeið í Lausanne í Sviss sumarið 2013 í tengslum við fund Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC). Andri Yrkill Valsson fór á AIPS námskeið sumarið 2015 í tengslum við 21 árs mót karla í fótbolta í Tékklandi og sótti svo annað AIPS námskeið í Katar árið 2016. Þá fór Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson á AIPS námskeið á Möltu sumarið 2023 sem tengt var Evrópumóti 19 ára landsliða karla í fótbolta.

Nánar um námskeiðið sem Ágúst Orri sækir nú í Bosníu, má lesa á vef AIPS.

Síðustu fréttir