
Árið 2007 gáfu Samtök íþróttafréttamanna út bókina Hetjurnar okkar, sem Hallgrímur Indriðason skrifaði. Bókin fjallar um kjörið á Íþróttamanni ársins fyrstu 50 árin, en í henni má einnig finna sögulegt yfirlit SÍ og svo tölfræðilegar upplýsingar um kjörið sem Óskar Ófeigur Jónsson vann.
Próförk bókarinnar í pdf. formi er aðgengileg til niðurhals með því að smella á svarta hnappinn hér fyrir neðan myndina af höfundi með bókina.
