Farið yfir sögulegt ár á aðalfundi

Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna 2021 var haldinn í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands þann 12. maí. Fámennt var á fundinum þar sem reikningur síðasta árs var samþykktur einhljóma af fundargestum og þá fór stjórnin yfir árið 2020 sem var sögulegt, en að vissu leyti tíðindalítið vegna Covid 19. Tómas Þór Þórðarson var endurkjörinn formaður SÍ til næstu tveggja ára en hann tók við embættinu af Eiríki Stefáni Ásgeirssyni árið 2019. Edda Sif Pálsdóttir (ritari) og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson (gjaldkeri) fullmóta stjórn samtakanna með Tómasi.

Lesa meira

Aðalfundur 12. maí

Stjórn Samtaka íþróttafréttamanna boðar til aðalfundar samtakanna miðvikudaginn 12. maí kl. 13:00 í húsakynnum blaðamannafélags Íslands, Síðumúla 23. Venjuleg aðalfundarstörf á dagskrá og farið yfir ársreikning.Einnig verður kosið til formanns næstu tvö árin. Stjórn SÍ.

Lesa meira

Sara Björk íþróttamaður ársins 2020

Sara Björk Gunnarsdóttir var í kvöld útnefnd Íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttafréttamanna. Þetta er í annað sinn sem hún hýtur heiðurinn. Alls fengu 25 íþróttamenn atkvæði í kjörinu í ár. Þar af voru 15 karlar en 10 konur. Íþróttafólk frá níu mismunandi sérsamböndum innan ÍSÍ fengu stig í kjörinu í ár. Stigin í kjörinu má sjá sundurliðuð í réttri röð hér fyrir neðan. 30 félagar eru í Samtökum íþróttafréttamanna þetta árið og tóku þeir allir þátt í kjörinu. Átta þeirra vinna fyrir Sýn, sjö þeirra hjá RÚV, fimm hjá Morgunblaðinu, þrír hjá Fotbolta.net,…

Lesa meira