Fimm nýir meðlimir

Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna var haldinn í dag, í húsakynnum BÍ í Reykjavík. Fimm umsóknir um aðild lágu fyrir og voru þær allar samþykktar. Ástrós Ýr Eggertsdóttir, Bjarni Helgason, Hjörvar Ólafsson, Kristinn Páll Teitsson og Valur Páll Eiríksson eru nú orðnir fullgildir meðlimir í SÍ. Tveir gengu úr SÍ, Hans Steinar Bjarnason og Hjörtur Júlíus Hjartarson. Meðlimir í Samtökum íþróttafréttamanna eru nú 30 talsins og hafa aldrei verið fleiri. Ekki var kosið til formanns á fundinum en Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Tómas Þór Þórðarson voru endurkjörnir í stjórn. Varastjórn og endurskoðendur…

Lesa meira

Aðalfundur SÍ

Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna verður haldinn fimmtudaginn 8. nóvember, klukkan 12.00, í húsakynnum Blaðamannafélag Íslands í Síðumúla 23. Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingatillögur verða að hafa borist félagsmönnum ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund.

Lesa meira

Ólafía Þórunn er Íþróttamaður ársins

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, er Íþróttamaður ársins 2017 en kjöri Samtaka íþróttafréttamanna var lýst í hófi í Hörpu í kvöld. Knattspyrnumennirnir Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson voru í næstu sætum á eftir. Þetta er í fyrsta sinn í 62 ára sögu kjörsins að kylfingur hlýtur sæmdarheitið Íþróttamaður ársins en Ólafía Þórunn er sjötta konan sem verður fyrir valinu. Karlalandslið Íslands í knattspyrnu var valið lið ársins og Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, þjálfari ársins. Báðir aðilar hlutu fullt hús í kjörinu. Hér eftir fer heildarniðurstaða…

Lesa meira