Íþróttamaður ársins 

1974 & 1984 | Ásgeir Sigurvinsson

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Ásgeir Sigurvinsson er einn besti knattspyrnumaður sem Ísland hefur átt og það skilaði honum titlinum íþróttamaður ársins tvisvar sinnum, 1974 og 1984. Hátindi ferils síns náði hann einmitt seinna árið, þegar hann náði einstökum árangri með Stuttgart, bæði Þýskalandsmeistaratitli og besti leikmaður deildarinnar, en hann var fyrsti útlendingurinn til að ná þeim titli í áratugi. Ásgeir Sigurvinsson er fæddur í Vestmannaeyjum 1955 og ólst þar upp. Knattspyrnuáhuginn kom snemma í ljós hjá honum og hann byrjaði að æfa 5-6 ára gamall. Hann segir…

Lesa meira
Íþróttamaður ársins 

1973 | Guðni Kjartansson

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Það urðu tímamóti í kjöri íþróttamanns ársins 1973. Þá var knattspyrnumaður í fyrsta sinn valinn sem íþróttamaður ársins. Fyrir valinu varð Keflvíkingurinn Guðni Kjartansson sem var í sigursælu liði Keflavíkur í knattspyrnu og auk þess kjölfesta í íslenska landsliðinu. Guðni er fæddur 1946 og er Suðurnesjamaður í húð og hár. Hann hóf snemma knattspyrnuiðkun með Keflavík og var hópur hans mjög sigursæll í yngri flokkum. Það skilaði sér síðan í meistaraflokkinn en sannkölluð gullöld ríkti í knattspyrnunni í Keflavík á árunum 1964–73. Guðni…

Lesa meira
Íþróttamaður ársins 

1972 | Guðjón Guðmundsson

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Guðjón Guðmundsson sundmaður er kannski ekki einn af þekktustu íþróttamönnum landans. En góður árangur á Ólympíuleikum vegur alltaf þungt og það varð til þess að Guðjón hlaut sæmdarheitið íþróttamaður ársins 1972. Guðjón er fæddur 1952 og ólst upp á Akranesi. Í barnaskóla fengu hann og félagi hans, Finnur Garðarsson, áhuga á sundi og æfðu þeir fyrst undir stjórn Helga Hannessonar þjálfara. Fljótlega kom í ljós að þeir hefðu báðir mikið til brunns að bera í íþróttinni og lentu báðir nokkuð hátt á innanfélagsmótum…

Lesa meira