Íþróttamaður ársins 

1971 | Hjalti Einarsson

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Hjalti Einarsson var valinn íþróttamaður ársins 1971. Það sem helst réði vali hans var glæsileg frammistaða hans í leik gegn Rúmenum sem þá voru heimsmeistarar. Þeim leik lauk með jafntefli, 14-14, en það var fyrst og fremst glæst frammistaða hans í síðari hálfleik sem gerði það að verkum að jafnteflið náðist. Hann fékk aðeins þrjú mörk á sig í hálfleiknum og lokaði m.a. markinu í 15 mínútur. Hjalti er fæddur árið 1938 á Siglufirði. Hann fluttist til Hafnarfjarðar árið 1951 og þar kynntist…

Lesa meira
Íþróttamaður ársins 

1970 | Erlendur Valdimarsson

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Það hafa fáir jafn fjölhæfir frjálsíþróttamenn komið fram á sjónarsvið í seinni tíð og Erlendur Valdimarsson. Hann náði góðum árangri bæði í hlaupum og stökkum og árið sem hann varð íþróttamaður ársins náði hann framúrskarandi árangri bæði í kringlukasti og hástökki. Erlendur fæddist 1947 og ólst upp á Skeiðum. Þar kviknaði áhuginn á íþróttum og spratt hann fyrst og fremst af því að þær voru helsta afþreyingin fyrir unga krakka. Lítið var reyndar um félagsskap yfir vetrartímann en á sumrin komu fleiri strákar…

Lesa meira
Íþróttamaður ársins 

1968 | Geir Hallsteinsson

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Geir Hallsteinsson er að margra mati einn af betri handboltamönnum sem Ísland hefur átt. Hann þótti einstaklega góð skytta og glöddu tilþrif hans áhorfendur jafnt hér á Íslandi sem erlendis. Geir fæddist í Hafnarfirði 1946 og ólst þar upp. Hann átti ekki langt að sækja handboltaáhugann því að faðir hans, Hallsteinn Hinriksson, er talinn faðir handknattleiksins á Íslandi og byrjaði að kenna íþróttina hér á landi um 1930 í Barnaskóla Hafnarfjarðar, sem síðar hét Lækjarskóli. Geir steig sín fyrstu spor í handbolta í…

Lesa meira