Íþróttamaður ársins 

1967 | Guðmundur Hermannsson

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Það er óvenjulegt að íþróttamenn, sérstaklega í íþrótt sem krefst mikils líkamlegs atgervis, nái hátindi ferilsins þegar þeireru komnir yfir fertugt. Sú varð þó raunin í tilviki Guðmundar Hermannssonar kúluvarpara. Þegar hann var kjörinn íþróttamaður ársins árið 1967 var hann orðinn 42 ára gamall og á næstu tveimur árum átti hann eftir að ná enn betri árangri í grein sinni. Titilinn hlaut hann fyrst og fremst fyrir að margbæta Íslandsmetið í kúluvarpi sem Gunnar Huseby átti áður. Guðmundur fæddist árið 1925 á Ísafirði…

Lesa meira
Íþróttamaður ársins 

1966 | Kolbeinn Pálsson

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Kolbeinn Pálsson körfuknattleiksmaður úr KR var kjörinn íþróttamaður ársins 1966 og er eini körfuknattleiksmaðurinn sem hefur hlotið þessa viðurkenningu. Kolbeinn er fæddur árið 1945 og er alinn upp í Reykjavík. Íþróttirnar, sem Kolbeinn stundaði helst þegar hann var yngri, voru skautahlaup, hlaup, handbolti og körfubolti. Smátt og smátt togaði körfuboltinn í hann og hann ákvað að einbeita sér alfarið að honum sextán ára gamall en hann hafði þá einnig æft handbolta og varð Íslandsmeistari í 3. flokki. Einnig æfði hann bæði með unglingalandsliðinu…

Lesa meira
Íþróttamaður ársins 

1964 | Sigríður Sigurðardóttir

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Tímamót urðu þegar íþróttamaður ársins 1964 var valinn. Sigríður Sigurðardóttir hreppti hnossið og varð þar með fyrsta konan til að hljóta þennan titil. 27 ár liðu þar til kona varð aftur fyrir valinu. Sigríður er fædd í Reykjavík árið 1942 og ólst þar upp. Hún var á táningsaldri þegar hún byrjaði að æfa handbolta og átti Árni Njálsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, sem ólst upp í sama hverfi og hún, stærstan þátt í því, en hann fékk hana til að mæta á æfingu hjá…

Lesa meira