Íþróttamaður ársins 

1963 | Jón Þ. Ólafsson

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Jón Þ. Ólafsson átti Íslandsmetið í hástökki í 22 ár utanhúss þrátt fyrir að mikil framþróun hafi átt sér stað í greininni á þeim tíma. Hann stökk hæst 2,10 m en hefði eflaust stokkið mun hærra með öðrum stökkstíl. Jón er fæddur árið 1941 og er alinn upp í Reykjavík. Hans fyrsta íþróttagrein var knattspyrna sem hann stundaði með Víkingi. Árið 1956 fór hann í Héraðsskólann á Laugarvatni þar sem var mikið íþróttalíf. Hann skipti fljótlega yfir í frjálsar íþróttir og þá kom…

Lesa meira
Íþróttamaður ársins 

1962 & 1969 | Guðmundur Gíslason

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Það má segja að Guðmundur Gíslason sé fyrsti íslenski sundmaðurinn til að ná eftirtektarverðum árangri á alþjóðavettvangi, að ógleymdum árangri Sigurðar Jónssonar Þingeyings á Ólympíuleikunum í London 1948. Hann setti fjölmörg Íslandsmet á ferlinum og einnig ófá Norðurlandamet. Hann var tvívegis valinn íþróttamaður ársins, fyrst fyrir Norðurlandamet og síðan fyrir að vera besti maður landsliðsins sem vann Dani í landskeppni. Guðmundur Gíslason er fæddur árið 1941 og er alinn upp í Reykjavík. Hann stundaði fjölda íþrótta á æskuárunum, meðal annars frjálsar íþróttir, skylmingar,…

Lesa meira
Íþróttamaður ársins 

1959 & 1965 | Valbjörn Þorláksson

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Öðru hverju koma fram íþróttamenn sem eru náttúrubörn og virðast hafa fullkomið líkamlegt atgervi til að stunda íþróttir. Valbjörn Þorláksson var dæmi um slíkt, en hann náði meðal annars þeim árangri að verða landsliðsmaður í frálsum íþróttum í 22 ár. Valbjörn er fæddur árið 1934 á Siglufirði og ólst þar upp fram að fermingaraldri. Hann byrjaði að stökkva stangarstökk þar með heimatilbúinni stöng í portinu heima hjá sér. Með þeim áhöldum tókst honum að stökkva tæpa þrjá metra. Hann fluttist til Keflavíkur 17…

Lesa meira