1956, 1957, 1958, 1960, 1961 | Vilhjálmur Einarsson

Texti: Hallgrímur Indriðason, úr bókinni Hetjurnar okkar Vilhjálmur Einarsson hefur oftast orðið íþróttamaður ársins, eða fimm sinnum. Afrekið sem hann vann árið 1956 þegar hann hlaut silfurverðlaun í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne (og átti meira að segja Ólympíumet í rúman klukkutíma) er enn eitt stærsta afrek sem íslenskur íþróttamaður hefur unnið. Vilhjálmur Einarsson fæddist 5. júní 1934 að Hafranesi við Reyðarfjörð. Það var snemma ljóst að áhugi Vilhjálms lá á íþróttasviðinu. Áhuginn er rakinn til frænda hans sem voru fræknir íþróttamenn á Austurlandi þegar hann var að alast upp.…

Lesa meira