Tómas Þór nýr formaður SÍ

Á aðalfundi Samtaka íþróttafréttamanna sem haldinn var í dag var Tómas Þór Þórðarson kjörinn nýr formaður SÍ. Tómas tekur við af Eiríki Stefáni Ásgeirssyni sem gegndi formennsku í samtökunum frá árinu 2013. Tómas hefur verið félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 2008. Á þeim tíma hefur hann starfað sem íþróttafréttamaður hjá DV, Morgublaðinu og mbl.is, Stöð 2 Sport og Vísi, en starfar nú hjá Símanum. Tómas er þó ekki nýr í stjórn SÍ, því hann hafði verið ritari stjórnar frá 2017 og varamaður 2012-2017. Formaður er kjörinn til tveggja ára. Þorkell…

Lesa meira

Sara Björk er Íþróttamaður ársins 2018

Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrnukona hjá Wolfsburg í Þýskalandi, var í kvöld útnefnd Íþróttamaður ársins 2018. Er það í fyrsta sinn sem hún hlýtur útnefninguna. Júlían J. K. Jóhannsson, kraftlyftingamaður, varð í öðru sæti og Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrnumaður, í því þriðja. Lið ársins var valið landslið Íslands í golfi og þjálfari ársins Kristján Andrésson, landsliðsþjálfari Svíþjóðar. Alls tóku 30 félagsmenn Samtaka íþróttafréttamanna þátt í kjörinu í ár og má sjá niðurstöður þess hér fyrir neðan: Íþróttamaður ársins 2018 1             Sara Björk Gunnarsdóttir           fótbolti                         464 2             Júlían J. K. Jóhannsson               kraftlyftingar             …

Lesa meira