Tíu efstu í kjöri Íþróttamanns ársins

Nú liggur fyrir hvaða tíu íþróttamenn, þrír þjálfarar og þrjú lið urðu atkvæðamest í árlegu kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á Íþróttamanni ársins, liði ársins og þjálfara ársins. Kjörinu verður lýst í Hörpu í Reykjavík laugardagskvöldið 29. desember í sameiginlegu hófi SÍ og Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, sem hefst klukkan 18.00. Bein sjónvarpsútsending á aðalrás Rúv hefst klukkan 19.40. Íþróttmaður ársins verður nú kjörinn í 63. sinn og lið og þjálfari ársins í sjöunda sinn. 30 félagsmenn í Samtökum íþróttafréttamanna nýttu atkvæðisrétt sinn í kjörinu. Íþróttamaður ársins Alfreð Finnbogason, fótbolti Guðbjörg Jóna…

Lesa meira

Yfirlýsing frá stjórn SÍ

Reykjavík, 14. desember 2018. Í ljósi hegðunar þáverandi félagsmanns í Samtökum íþróttafréttamanna gagnvart öðrum félagsmanni á meðan HM karla í fótbolta stóð í Rússlandi sendir SÍ frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: Samtök íþróttafréttamanna leggja ríka áherslu á að íþróttafréttamenn geti sinnt störfum sínum án þess að verða beittir ofbeldi eða sæta óeðlilegri áreitni af nokkru tagi. Samtökin fordæma því hvers kyns ofbeldi og skora á félagsmenn að leggja sitt af mörkum við að tryggja öruggt starfsumhverfi. Stjórn SÍ harmar einnig að hafa ekki fjallað um málið fyrr en nú og biðst…

Lesa meira

Fimm nýir meðlimir

Aðalfundur Samtaka íþróttafréttamanna var haldinn í dag, í húsakynnum BÍ í Reykjavík. Fimm umsóknir um aðild lágu fyrir og voru þær allar samþykktar. Ástrós Ýr Eggertsdóttir, Bjarni Helgason, Hjörvar Ólafsson, Kristinn Páll Teitsson og Valur Páll Eiríksson eru nú orðnir fullgildir meðlimir í SÍ. Tveir gengu úr SÍ, Hans Steinar Bjarnason og Hjörtur Júlíus Hjartarson. Meðlimir í Samtökum íþróttafréttamanna eru nú 30 talsins og hafa aldrei verið fleiri. Ekki var kosið til formanns á fundinum en Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Tómas Þór Þórðarson voru endurkjörnir í stjórn. Varastjórn og endurskoðendur…

Lesa meira